Landamerki varða eignamörk jarða

Landamerki hafa verið til frá örófi alda. Á Íslandi sjáum við víða gömul landamerki. Á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi er finna stein og síðan steingarð í framhaldi af honum. Á steininum stendur ef vel er að gáð „LANDAMERKI“.

Á skýringarplatta við steininn stendur. Þvergarður, Valhúsagarður. Forn landamerkjagarður, sem náði þvert yfir Framnesið frá Sandvík í suðri til Hrafnabjarga í norðri milli jarðanna Ness og Eiðis. Talinn vera frá 11. öld. „Landamerki“ klappað í steininn.

Skemmtilegt væri að fá myndir af öðrum landamerkjum og lýsingum á Facebook og Instagram síðu okkar.